top of page

Fyrstu ræktunarmarkmið

​

Við upprunalegu lýsinguna á Shih Tzu hundinum notuðu Kinverjar samanburði við önnur dýr og þannig voru fyrstu tegundarlýsingar í Forboðnu Borginni:


Þeir eiga að hafa ljónshöfuð, andlitið á að vera kringlótt og líta út eins og ugla.  
Augun eru eins og dreka augu; stór, útstæð og gljáandi, augnlokin mjúk og heillituð. Hárbrúskar eiga að þekja neðrivör, tungan eins og bóndarósarblað og sporöskjulagað.  Munninum var líkt við munn frosks og ”hrísgrjóna tennur” áttu ekki að standa útfyrir nema þegar hundurinn fagnaði.  Eyrun áttu að vera stór og hangandi. Ennisrót átti að vera við nefbak. Búkurinn var samanborinn við bjarnarskrokk, en tígurbakið átti að vera breitt og háls stuttur.  Feldurinn átti að vera langur, mjúkur og ullarkenndur.  Fönix eða Krýsantem skott væri æskilegt.  Hárin við enda skottbroddsins eiga að vera löng en styttri á sjálfu skottinu.  Fílsleggirnir eiga að vera stuttir og þykkir.  Langir leggir eru mjög óæskilegir.  Langa hárið undir hökunni á að hylja svuntuna.  Ljóna hundurinn á að vagga eða hreyfa sig eins og gullfiskur í vatni.  

Þvílíka mynd sem þetta gefur !!!!!

 


Einnig var sérlega tekið fram það sem á að vera sýnilegt og ekki sýnilegt  


Höfuðið á að sjást en ekki andlitið

Eyrun eiga sjást en ekki augun

Augnhnötturinn á sjást en ekki augnlokin

Trýnið á að sjást en ekki nefbakið

Efri vör á að sjást en ekki neðri

Leggir eiga að sjást en ekki fætur

Skottbroddurinn á að sjást en ekki skottið

Þófarnir eiga sjást en ekki tærnar

Tærnar eiga að vera eins og fjallgarðar.  Þar sem gulur var heimsveldislitur Kína var hann haldinn í miklum metum fyrir ljónahundinn.  Guli liturinn á samt að vera eins og liturinn á kameldýrum.  Hundur sem var með skæran, glansandi gulan lit var ekki af hreinum ættum.  Mismunandi nöfn voru gefin fyrir liti og merkingar á Shih Tzu hundunum.

 

​

Heillitaðir gulir  voru Chin Chia Huang Pao, gulur með hvítan háls – Chin Pi Yu Huang Chuan, gullskykkja með hvítan jaðar kraga. Hundur með gula kápu og hvítan

makka var kallaður því rómantíska nafni Chin Pan to Yueh ” Gullin skál sem heldur tungli”  Einlitur svartur hundur var kallaður Yi Ting Mo, ” blekklessa” og Wu Yun Kai Hsueh var nokkuð flott nafn sem gefið var hundum með svartan skrokk, hvítan maga og fætur, þýtt yfir á íslensku sem ”Svört ský yfir snjó”.  Marglitaður hundur var kallaður Hua Tse, blómabarn.  Stundum var Shih Tzu klipptur á skrokknum til að líkjast heilaga ljóninu.


Tilv.:  East Asiatic Breeds eftir Elisabeth Legl-Jacobsson.

þýtt  af sk
sk


 

​

​

​

​

Fyrsta opinbera tegundarlýsingin var dregin upp 1938

af Kínverska KC í Peking

 

Löng eyru:  Hjartalagað (því lengri hár á eyrunum því betra)

Löng svunta og buxur: (Erfitt var að finna afturlappir með sítt hár, þess vegna var það mikils metið)

Stærð: 13-18 tommur

Þyngd: 10 – 15 lbs

Hæð:  9-12 tommur

Augu: Stór og tær ( hárið á að falla yfir þau og hylja þau alveg ef það er mögulegt)

Tær: Vel hærðar, þófar breiðir og flatir

Framlappir: Mega vera aðeins bognar (deilt var um þetta)

Afturhluti:  Aðeins hærra en bakið

Hár:  Eins glansandi og hægt er, svunta og buxur liðaðar

Höfuðkúpa: Breið og flöt

Skott: Vel hært, borið glaðlega yfir bakið

Litir:  Allir litir leyfilegir, einlitir og blandaðir, gullinbrúnir og hunangs litir í uppáhaldi.


Tilv.:  East Asiatic Breeds eftir Elisabeth Legl-Jacobsson.
þýtt sk
sk

 

​

​

​

Opinber tegundarlýsing FCI 1998
 

Upprunaland:       Tíbet

Verndaður af:      Stóra Bretlandi

Dagssetning fyrsta opinbera birting tegundarlýsingar:  24.06.1987

Notagildi:  Selskapshundur

FCI Flokkur:         Grúppa 9               Selskaps og smáhundar    

                                Kafli 5                   Tíbetanskar hundategundir

                                Án vinnuprófs.

 

Almennt útlit:      Kröftugur hundur með mikinn feld, ber sig með áberandi reisn og andlit sem líkist Krýsantemblómi.

Atferli/Geðslag: Greindur, athafnasamur og árvakur.  Vingjarnlegur og sjálfstæður

Höfuð:                   Breitt, kringlótt, breitt milli augna.  Mikið og þykkt hár sem fellur vel yfir augun.

                                Gott skegg.  Hárið vex upp við ennisrót sem gefur útlit eins og Krýsantem blóm.

Höfuðkúpan:       Greinileg ennisrót

Andlit:                   Nef: Svart en ljósrauðbrúnt á hundum með ljósrauðbrúnar merkingar.  Efri hluti nefsins á að vera í sömu hæð eða aðeins fyrir neðan neðri augnlok.  Trýni sem vísar niður á við er mjög óæskilegt.  Breiðar opnar nasir.  Þröngar nasir er mjög óæskilegar.

                                Trýni: Nægilega breitt, ferkantað, stuttur, laust  við hrukkur, flatur og hárprúður.   Lengd ca 2,54cm frá nefbrún að ennisrót.  Nefbak beint eða vísar aðeins uppávið.  Litarefnin í trýninu eins óbrotin(óskipt/heil) og hægt er.

                                Varir:  Jafnar

                                Kjalka/Tennur: Breið, með litla skúffu eða jafnbit.

                                Augu:  Stór, dökk, kringlótt, staðsett með gott bil á milli en ekki útstæð.  Hlýlegur svipur.  Augun mega vera ljósari í ljósrauðbrúnum eða ljósrauðbrún merktum hundum.  Engin sýnileg augnhvíta.

                                Eyru: Stór, ernablöðkur langar og lafandi.  Eyrnastaða  aðeins fyrir neðan efstu brún kúpunnar, með  mikinn feld sem  virðist blandast hárinu á hálsinum.

Háls:                      Í góðum hlutföllum með fallegan boga.  Nægilega langur til að bera höfuðið með reisn.

Skrokk:                Lengra milli herðakambs og rófustæði en hæð  að herðakambi.

Bak:                       Beint

Mjóhryggur:       Vel festur og sterkbyggður

Bringa:                 Breið og djúp

Rófa:                     Feldmikil, borin glaðlega hátt yfir bakið.   Hæð nokkuð svipuð og höfuð til að gefa jafnvægi í útlínur.

Limir:                   Framhluti:  Fótleggir stuttir, vöðvaðir með rúmgóð bein, eins bein og hægt er, í samræmi við bringu sem nær vel niður.

                                Bógur: Fastur fyrir, liggur vel aftur.

                                Bakhlut:  Fótleggir stuttir, vöðvaðir með mikill bein.  Beinir þegar horft er aftanfrá.  Virðast gríðastórir  vegna                 mikils felds.

                                Læri:  Vel rúnuð og vöðvastælt

                                Fætur:  Rúnaðir, þéttir og góðir þófar,   virðast stórir vegna mikils feldar.

Göngulag/Hreyfingar:  Með reisn, flæðandi,  fram lappir teygja sig vel fram, og sterkar aftur hreyfingar þar sem þófinn sést allur.

Hár:                       Löng, þétt, ekki krullur, með góðan undirfeld.  Smáir liðir eru leyfilegir.  Mælt sérlega með því að binda hárið á höfðinu upp.

                                Litur:      Allir litir eru leyfilegir, hvítur blesi á ennisbrún og hvítur endi á rófu mjög æskilegt á hunda sem eru parta litaðir.

Stærð & Þyngd:  Ekki hærri en 26,7cm (10,5 tommur), týpa og tegundar einkenni er samt mikilvægari og ekki má fórna því fyrir stærðina

                                Þyngd: 4,5 til 8,1kg (10-18 lbs.)  Kjörþyngd 4,5 -7,3kg (10-16 lbs.)

Gallar:                  Allt sem er utan við framangreinda punkta skal líta á sem galla og ætti að meta með nákvæmu tilliti til hversu alvarlegt það er og áhrif þess á heilsu og heilbrigði hundsins.

                                Hundur sem sýnir greinilega líkamlega- eða atferlisbresti skal dæma úr leik.

                                NB: Karldýr eiga að vera með tvö eistu staðsett fyllilega í pungnum.

  • Black Facebook Icon

© 2017 öll notkun á efni vefsíðunnar er óheimil nema með skriflegu leyfi eigenda

bottom of page