top of page

Eingreiðsla félagsmanna H.R.F.Í.

  • shihtzustjorn
  • Jul 18, 2017
  • 1 min read

Eingreiðsla félagsmanna Á fjölmennum félagsfundi í Gerðubergi 11.sept 2013 var meðal annars tekið fyrir og samþykkt að fundurinn veitti stjórn HRFÍ umboð til að ganga til samninga við Íslandsbanka um skuldauppgjör á skuld sem hvílir á 2. veðrétti fasteignarinnar Síðumúla 15.

Samkomulag er um að HRFÍ greiði 2,5 milljón kr. til Íslandsbanka og að þeirri fjárhæð verði varið til að greiða inn á skuldina gegn því að Íslandsbanki felli niður það sem eftir stendur, eða í dag um 8,2 milljón kr. Fundurinn samþykkir jafnframt að allir félagsmenn greiði HRFÍ 1.700 kr. þannig að með samstilltu átaki safni félagsmenn þessum 2,5 milljón kr. sem nýttar verða til uppgjörs við Íslandsbanka.

Greiðsluseðlar verða sendir í heimabanka félagsmanna, en verða ekki sendir út á pappír. Gjalddagi verður 10. október 2013, eftir þann tíma verður ekki hægt að nýta sér þjónustu félagsins án þess að hafa greitt gjaldið. 1.700 kr. gjald verður því lagt á árgjald 2014 hjá þeim félagsmönnum sem ekki greiða gjaldið á árinu 2013.

Á fundinum kom jafnframt fram að einhverjir félagsmenn vilja greiða hærri upphæð en styrkurinn hljóðar uppá og er það að sjálfsögðu vel þegið, reiknisnúmer söfnunarinnar er 515-26-700230. Kt: 680481-0249, vinsamlega merkið greiðsluna “styrkur”.


 
 
 

Kommentare


Featured Posts
Check back soon
Once posts are published, you’ll see them here.
Recent Posts
Archive
Search By Tags
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
  • Black Facebook Icon

© 2017 öll notkun á efni vefsíðunnar er óheimil nema með skriflegu leyfi eigenda

bottom of page