Fréttatilkynning frá Hundaræktarfélagi Íslands
- shihtzustjorn
- Jul 18, 2017
- 1 min read
Framkvæmdastjóri Hundaræktarfélags Íslands vill koma á framfæri að félagið hefur ekki óskað eftir að banna hunda með sterka varnarhvöt, rottweiler- og dobermannhunda, eins og greint var frá í Fréttablaðinu föstudaginn 5. ágúst sl. Hins vegar var fyrir nokkrum árum rætt innan félagsins bann við innflutningi á hundum sem taldir eru hættulegir og/eða með sterka varnarhvöt, í tengslum við nýtt skapgerðarmat sem MAST ætlaði að setja á sem skilyrði fyrir innflutningi á ákveðnum hundategundum. Sú umræða var ekki í tengslum við nýlega árás hunds af rottweiler uppruna sem beit tólf ára stúlku í Innri-Njarðvík. Sá hundur var ekki skráður hjá Hundaræktarfélagi Íslands.
Við búum við þá staðreynd að allar hundategundir geta bitið og er það á ábyrgð hundaeigenda og ræktanda, að fyrirbyggja að slíkt slys geti átt sér stað. Hundaræktarfélag Íslands vinnur gegn þessari hættu meðal annars með heilsufarkröfum á ræktunardýr og einnig er boðið upp á skapgerðarmat. Hvoru tveggja stuðlar að því að rækta undan heilbrigðum dýrum sem eru jafnframt góðir fulltrúar tegunda sinna.
Í sumar náði Hundaræktarfélag Íslands þeim gleðilega áfanga að gerast fullgildur meðlimur að FCI sem eru alþjóðasamtök hundaræktarfélaga. Það er því ekki á framfæri Hundaræktarfélags Íslands að banna tegundir sem samþykktar eru af FCI. Öll reglusetning sem takmarkar eignarhald og innflutning ákveðinna dýra og hundategunda eru því í höndum stjórnvalda.
Valgerður Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri

Comentarios